07.05.2012 22:56

Einn að koma og annar að fara.


Tvær teknar seinnipartinn í dag en þarna var Askur GK að koma í land og svo fór Fjölnir SU út .





                                              Myndir Raggi P

07.05.2012 22:49

Bryggjumyndir.


Tvær myndir tekna um helgina í Grindavík .




                                            Bryggjumyndir @ Raggi P

05.05.2012 09:57

Af miðunum


Nokkrar myndir af miðunum  í maí en þarna er Sóley Sigrjóns GK í aðalhlutverki,  þarna má líka sjá Vestmannaey VE, Bergey VE og aðeins sést í Frosta VE.








                                               Myndir 1 maí © Raggi P

05.05.2012 09:52

Örninn GK-204


Línubáturinn Örninn GK að koma úr róðri fyrir nokkrum dögum.




                                          Örninn GK © Myndir Raggi P 

30.04.2012 15:25

Sveinbjörg NS-49


Fékk sendar þessar myndir af Sveinbjörgu NS 49 þar sem hún liggur við bryggju á Vopnafirði. Var verið að skifta um eigendur á þessum  og ætla nýju eigendurnir að róa á strandveiðar frá Vopnafirði í sumar en ekki kom fram hverjir það væru.




                                    Sveinbjörg NS © Myndir Kristrún Ósk

26.04.2012 08:02

Um borð í apríl.


Hérna koma nokkrar myndir teknar í seinasta túr þar sem var bæði blíða og góð veiði sem er góð blanda en á þessum myndum erum við að hífa einhvað um 6 tonn sem er mjög góðu skammtur. Fleiri myndir eru í myndaalbúmi úr túrnum.










                                     Um borð © Myndir Raggi P

25.04.2012 22:15

Steinunn SF-10


Steinunn SF að landa góðum afla í Grindavík í þessari viku, en ég held að þetta sé í fyrsta skifti sem þeir landa hérna í Grindavík.






                                                    Myndir Raggi P

25.04.2012 22:07

Kristbjörg ÍS


Tók þessar myndir af Kristbjörgu ÍS í seinasta túr þar sem hún var að draga net í fjáröflunar rally hafró út af selvog. Það var flott veður þarna og er myndirnar teknar á löngu færi eins og sést á efstu myndinni.






                                            Kristbjörg ÍS ©  Myndir Raggi P

20.04.2012 10:03

Togbátar í Reykjavík.


Steinunn SF og Helga RE við bryggju í Reykjavík á seinasta dag vetrar, en einhverjar bryggjusögur hafa verið um að Helgan sé á söluskrá og sé búið að leggja henni ?



Þarna eru tvær kynslóðir af togbáturm Steinunn SF ,Helga RE  og svo Dröfn RE sem segja má að sé af eldri kynslóð togbáta .


                                   Reykjavíkurhöfn © Myndir Raggi P

19.04.2012 21:39

Vöttur RE


Vöttur RE að koma úr róðri í gær en hann er að róa á grásleppunet frá reykjavík. 


                                            Vöttur RE © Mynd Raggi P

19.04.2012 21:31

Grindavíkurhöfn.


Hérna koma 3 myndir sem ég tók nýverið hérna í Grindavík.






                                        Grindavíkurhöfn © Myndir Raggi P

15.04.2012 11:54

Særif SH-25


Særif að koma inn til Grindavíkur fyrir stuttu þar sem hann nar að róa í sma tíma á mars.


                                           Særif SH © Mynd Raggi P

15.04.2012 11:50

Grásleppubátar.


Grásleppubátarnir  Rán GK og Hafsvala HF á veiðum fyrir austan Grindavík fyrir stuttu.





                                                 Myndir Raggi P

11.04.2012 10:07

Tjaldur ÓF-3


Tjaldur ÓF að koma inn til Ólafsfjarðar fyrir stuttu þar sem hann er að róa á grásleppunet, en ekki frétti ég af aflabrögðum hjá honum.


                                           Tjaldur ÓF © Mynd Raggi P

11.04.2012 09:58

Sjöfn EA-142 og Nunni EA-87


Tveir sem liggja á Akureyri en hvorugur hefur verið í drift í vetur.


                                              Sjöfn EA © Mynd Raggi P


                                                         Nunni EA © Mynd Raggi P
Flettingar í dag: 715
Gestir í dag: 206
Flettingar í gær: 447
Gestir í gær: 185
Samtals flettingar: 760716
Samtals gestir: 252581
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 23:51:19