Sjómansferillinn minn
Hér ætla ég að fara gróft yfir báta sem ég hef verið á og hvað ár, hef ekki talið hvað það eru margir en það eru örugglega nokkuð margir, kemur í ljós þegar talningin verður búinn
Fyrsti báturinn sem ég fór á til veiða var Þytur SF sómi 800 sem pabbi átti ég fór fyrst með honum sumarið 1987 á handfæri og líka sumarið 1988, ég var nokkuð sjóveikur í fyrstu túrunum og oft sem ég ætlaði aldrei á sjó aftur, en samt fór maður aftur og aftur...

Árin 1988 til 1992 var ég á sumrin með pabba á Von SF 1 7137 en við vorum bæði á færum og línu og oft fór ég í róðra um helgar yfir veturinn og öllum fríum sem voru í skólanum

Árið 1993 ræð ég mig á Steinunni SF 10 og er ég á henni á síld og netum , ég var 3 netavertíðir á henni árin 93,94 og 96 og tvær síldavertíðir 93 og 94.

Árið 1994 um sumarið fer ég einn túr á Andey SF og svo norður á rækju á Gústa í Papey SF á rækju en á myndinni af honum sem ég fékk á Hafþóri eru við að koma í land á Húsavik , en við strönduðum í höfninni og setum togvír í land til að losa bátinn. Í ágúst 1994 ver ég nokkra túra á Skinney á net og svo í sept fer ég á færi á Gæfu meðan ég er að bíða eftir að Steinunn fer á síld. Á þessum tíma var Steinunn á Netum humar og síld en á hunmarveiðunum voru þeir bara 6 en 9 á síld og netum, þess vegna var maður í afleysingum á sumrin.

Svo í Janúar 1995 kemur nýtt skip Jóna Eðvalds til Hornafjarðar og fer hluti af áhöfn Steinunnar á hana og fer ég yfir á Jónu og er á henni loðnuvertíðina 1995 en eftir vertíð fer ég svo á handfæri á Gæfu.
Haustið 95 fer ég svo í vélskólann og svo fer ég á Melavík í jan 1996 meðan ég er að bíða eftir að Steinunn fer á net og er svo þar netavertíðina og svo handfæri sumarið 96 á Gæfu

Er á handfærum á þessum bát haustið 1994 og sumarið 95 96 og aðeins sumarið 97.
Haustið 96 fer ég svo í stýrimannaskólann og er þar fram á vor 1998 en sumarið á milli stigana i skólanum er ég bara að að leysa af á handfærum trolli humar og netum.
Svo þegar skólinn er búinn fer ég að róa á Gæfu 7371 og er á handfærum um sumarið en fer svo á línu um haustið á henni.

Svo fer ég á netavertíð á Munda Sæm 1999 en svo á handfæri þegar vertíðin er búinn og svo aðeins á línu um hastið og svo einn mánuð á Hvanney á humar í okt 99

Var á Gauknum vertíðina 2000 í afleysingum og fer svo á handfæri sumarið 2000 en svo fer ég aftur á Gaukinn um haustið á rækju og er á honum þangað til honum er lagt eftir humarvertíð 2001 en þá fer ég á Geirfugl og er á honum fram í sept 2002

Set 2002 ræð ég mig hjá Nónu ehf á Nónu GK Gróu GK og svo Venna GK en þessir bátar voru allir í eigu Nónu ehf en ég starfa hjá þeim til nov 2004.

Sumarið 2003 er 2 mánaðar sumarfrí hjá Nónu ehf og fer ég með Munda Sæm á rækju um sumarið og myndina hér fyrir neðan tók Hafþór þegar við erum að farafrá Húsavík í fyrsta túrinn en við komum þar í land til að sækja rækjutrollið.

Svo þegar ég hætti hjá Nónu ehf fer ég á Oddgeir og er þar til nýji Vörður kemur sumarið 2007 og er ég búinn að vera á honum síðan.

Myndirnar af bátunum hér fyrir neðan eru bátar sem ég hef farið á afleysingatúra frá einum upp í nokkra, en ég var mest að leysa af á milli vertíða og með skóla.
vantar 5 myndir, Garðar 2 SF, Andey SF . Krossey SF(glófaxi), Hafberg GK og Haukafell sf 111

Flettingar í dag: 715
Gestir í dag: 206
Flettingar í gær: 447
Gestir í gær: 185
Samtals flettingar: 760716
Samtals gestir: 252581
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 23:51:19